
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist andvígur því að matstofa Samhjálpar verði flutt í íbúðarhverfi við Grensásveg. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Ert þú sammála að matstofa Samhjálpar verði flutt í íbúðarhverfi á Grensásvegi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 59,14%
Já: 22,04%
Hlutlaus: 18,82%
