Könnun: Meirihluti ekki sammála því fyrirkomulagi að Þjóðkirkjan sé rekin fyrir skattfé almennings

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ekki sammála því fyrirkomulagi að Þjóðkirkjan sé rekin fyrir skattfé almennings.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sammála því fyrirkomulagi að Þjóðkirkjan sé rekin fyrir skattfé almennings?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 53,8%

Já 41,4%

Hlutlaus 4,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila