
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist ósáttur við áform um að grafa upp líkamsleifar Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Ert þú sátt/ur við áform um að grafa upp líkamsleifar Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 55,5%
Já: 32,3%
Hlutlaus: 12,1%
