Könnun: Meirihluti segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með ríkisstjórnina

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með ríkisstjórnina. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum með ríkisstjórnina?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 92,86%

Nei: 6,07%

Hlutlaus: 1,07%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila