
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að þingmenn eigi ekki að þurfa að segja af sér þingmennsku þótt þeir gangi í annan stjórnmálaflokk á kjörtímabilinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að þingmaður sem gengur í annan stjórnmálaflokk á kjörtímabilinu eigi að segja af sér þingmennsku?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 58,72%
Já: 36,60%
Veit ekki: 4,68%
