Könnun: Meirihluti telur Evrópusambandið helst standa gegn friðarsamningi í Úkraínu

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur Evrópusambandið helst standa gegn því að friðarsamningur náist vegna stríðsins í Úkraínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Hverjir standa helst gegn því að það náist friðarsamningur í Úkraínu og Rússlandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Evrópusambandið: 70,28%

Rússland: 15,83%

Úkraína: 10,28%

Bandaríkin: 2,22%

Aðrir: 1,67%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila