Könnun: Meirihluti vill banna börnum yngri en 15 ára aðgang að TikTok og Instagram

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur rétt að banna börnum yngri en 15 ára aðgang að TikTok og Instagram. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Er rétt að banna börnum yngri en 15 ára aðgang að TikTok og Instagram?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 67,03%

Nei: 23,81%

Hlutlaus: 9,16%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila