
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að unnar kjötvörur í skólamáltíðum í leik- og grunnskólum verði bannaðar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að banna unnar kjötvörur í skólamáltíðum í leik- og grunnskólum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 57,73%
Já: 36,36%
Hlutlaus: 5,91%
