
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill ekki að lagðir verði meiri fjármunir í að byggja fangelsi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að leggja meiri fjármuni í að byggja fangelsi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 73,42%
Já: 26,58%
