
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill ekki að tónleikahald verði leyft á Þingvöllum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að leyfa tónleikahald á Þingvöllum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 54,24%
Já: 39,41%
Hlutlaus: 6,36%
