
Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að ekki hafi verið nauðsynlegt að hækka stýrivexti. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Telur þú að það hafi verið nauðsynlegt að hækka stýrivexti?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 83,04%
Já: 12,50%
Ekki viss: 4,46%
