
Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill að bannað verði að skipið MV Hondius komi til landsins eftir að banvæn Hantaveira fannst um borð. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að banna komu skipsins MV Hondius til landsins eftir að banvæn Hantaveira fannst um borð í skipinu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 85,22%
Nei: 12,26%
Hlutlaus: 2,52%
