
Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill hafa íslensku krónuna áfram sem gjaldmiðil á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni og birt var í gær.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hvaða gjaldmiðil viltu hafa á Íslandi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Íslenska krónan: 69,3%
Bandaríkjadalur: 21,4%
Evra: 5,1%
Önnur mynt: 4,1%
