Könnun: Banna á notkun farsíma í þingsal

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að rétt sé að banna notkun farsíma í þingsal. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að banna notkun farsíma í þingsal?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 94,2%

Nei 4,5%

Hlutlaus 1,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila