Könnun: Rannsaka ætti gjafagjörning Reykjavíkurborgar til olíufélaganna

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að rannsaka ætti gjafagjörnin Reykjavíkurborgar til olíufélaganna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að rannsaka gjafagjörninga Reykjavíkurborgar til Olíufélaganna?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 96,4%

Nei: 1,9%

Hlutlausir: 1,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila