Könnun: Ríkisstjórninni hefur gengið mjög illa að hafa tök á efnahagsmálunum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ríkisstjórninni hafi gengið mjög illa að hafa tök á efnahagsmálunum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hversu vel eða illa hefur ríkisstjórnin tök á stjórn efnahagsmála?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Mjög illa 80,3%

Fremur illa 11,9%

Mjög vel 4,6%

Í meðallagi 2,6%

Fremur vel 1,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila