
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu er sammála því að Bjarni Benediktsson matvælaráðherra veiti Hval hf áframhaldandi leyfi til hvalveiða. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Ert þú sammála því að Bjarni Benediktsson matvælaráðherra veiti Hval hf áframhaldandi leyfi til hvalveiða?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 91%
Nei: 8,2%
Hlutlausir: 1%
