
Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Miðflokksins hafi staðið sig best í fyrri hluta eldhúsdagsumræðna miðvikudagskvöldið 9. september. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hver af þingmönnum/ráðherrum stóð sig best í, fyrri hluta, eldhúsdagsumræðna miðvikudagskvöld 9. sept?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokki: 61,07%
Guðrún Hafsteinsdóttir, Sjálfstæðisflokki: 16,79%
Inga Sæland, Flokki fólksins: 11,07%
Kristrún Frostadóttir, Samfylkingu: 5,71%
Guðmundur Ingi Kristinsson, utan flokka: 2,50%
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn: 1,79%
Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokki: 1,07%
