Könnun: Skiptar skoðanir á hvort fólk telji að matvælaráðherra muni veita Hval hf leyfi til veiða

Mjög skiptar skoðanir eru á því hvort fólk telji að matvælaráðherra muni veita Hval hf leyfi til hvalveiða og skiptist fólk í nánast hnífjafnar fylkingar um hvort veiðarnar verði leyfðar eins og fram kemur í könnun Útvarps Sögu.

Það voru þó nokkrir fleiri sem telja að matvælaráðherra muni ekki leyfa veiðarnar. Þetta kemur fram í niðurstaðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að matvælaráðherra muni veita Hval hf leyfi til hvalveiða?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 49,7%

Já: 45%

Hlutlausir: 5,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila