
Skiptar skoðanir eru meðal þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu um hvort stöðva eigi vinnudeilu Icelandair og flugmanna með lagasetningu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að stöðva vinnudeilu Icelandair og flugmanna með lagasetningu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 48,26%
Nei: 41,86%
Hlutlaus: 9,88%
