Könnun: Skiptar skoðanir um niðurstöðu í Íslandsbankamálinu

Samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Útvarps Sögu eru skiptar skoðanir meðal almennings um hvort fólk sé sammála niðurstöðu Ríkisendurskoðunar í Íslandsbankamálinu en þó eru í við fleiri sem eru ekki sammála niðurstöðunni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ertu sammála niðurstöðu Ríkisendurskoðunar í Íslandsbankaskýrslunni?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 42,9%

Já 39,9%

Hlutlaus 17,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila