Könnun: Skylda ætti leigubílstjóra til þess að tala og kunna íslensku

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að skylda ætti leigubílstjóra til þess að tala og kunna íslensku. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eigum við að skylda leigubílstjóra að tala og kunna íslensku?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 96,5%

Nei: 3%

Hlutlausir: 0,5%

Greidd voru 630 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila