Könnun: Styðja ekki samgönguáætlun um borgarlínu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu styðja ekki samgönguáætlun um borgarlínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Styður þú samgönguáætlun um borgarlínu?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 88,3 %
Já 9,4%
Hlutlaus 2,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila