
Tæplega sjö af hverjum tíu sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segja Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í Reykjavík hafa staðið sig vel eða mjög vel í nýju starfi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hvernig finnst þér Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í Reykjavík hafa staðið sig í nýju starfi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Mjög vel: 37,83%
Vel: 30,79%
Sæmilega: 18,77%
Illa: 6,45%
Mjög illa: 6,16%
