Könnun: Taka alls ekki mark á stóru skoðanakönnunarfyrirtækjunum

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu taka alls ekki mark á stóru skoðanakönnunarfyrirtækjunum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Tekur þú mark á stóru skoðunakönnunarfyrirtækjunum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Alls ekki: 64,3%

Lítið: 20%

Smávegis: 6,8%

Já: 5,4%

Talsvert: 3,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila