Könnun: Telja að almenningur vanmeti spillingu á Íslandi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að almenningur vanmeti spillingu á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að almenningur vanmeti spillingu á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 91,5%

Nei: 7,5%

Hlutlaus: 1,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila