Könnun: Telja að fjármálaráðherra eigi að segja af sér

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra eigi að segja af sér. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér vefsíðunni um helgina. Aðferðafræðin sem notast var við er svokallað sjálfvalið úrtak (netkönnun) þar sem 928 þátttakendur völdu sig sjálfa í úrtakið með því að taka þátt í könnuninni á vefsíðu Útvarps Sögu.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt:

Telur þú að fjármálaráðherra eigi að segja af sér?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 76%

Nei 19%

Hlutlaus 5%

Skoðanakönnun Útvarps Sögu mánudaginn 6. mars 2023
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila