Könnun: Telja að fyrrverandi ríkisendurskoðanda sé heimilt að senda Lindarhvolsskýrsluna á hvern og einn alþingismann

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Sigurði Þórðarsyni fyrrverandi ríkisendurskoðanda sé heimilt að senda hverjum og einum þingmanni Lindarhvolsskýrsluna. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Telur þú að Sigurði Þórðarsyni fyrrverandi ríkisendurskoðanda sé heimilt að senda þingmönnum hverjum um sig greinargerð sína um Lindarhvol?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu 86,1%

Nei sögðu 8,9%

Hlutlausir voru 5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila