Könnun: Telja að ríkisstjórnin muni ekki lifa út kjörtímabilið

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ríkisstjórnin muni ekki lifa út kjörtímabilið. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að ríkisstjórnin muni lifa út kjörtímabilið?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 63,2%

Já: 33,5%

Hlutlausir: 3,2%

Greidd voru 582 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila