Könnun: Telja að til átaka gæti komið milli Rússlands og NATO

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að til átaka geti komið á milli Rússlands og NATO. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú hættu á að það komi til átaka á milli NATO og Rússlands?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 64,6%

Nei: 23,7%

Ekki viss: 11,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila