Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að til standi að selja Landsvirkjun. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það standi til að selja Landsvirkjun?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já:76,2%
Nei: 19,8%
Hlutlausir: 4%