Könnun: Telja að velja ætti Gylfa Þór Sigurðsson í íslenska landsliðið í knattspyrnu

Gylfi Þór Sigurðsson

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að velja ætti Gylfa Þór Sigurðsson í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það eigi að velja Gylfa Þór Sigurðsson í íslenska landsliðið í knattspyrnu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 80,1%

Nei: 13,3%

Hlutlausir: 6,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila