Könnun: Telja að verið sé að skerða tjáningarfrelsið á Íslandi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að verið sé að skerða tjáningarfrelsið á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það sé verið að skerða tjáningarfrelsi á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 89,9%

Nei 8,5%

Hlutlaus 1,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila