Könnun: Telja ekki nauðsynlegt að fá varnarlið aftur hingað til lands með fasta viðveru

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki nauðsynlegt að fá varnarlið aftur hingað til lands með fasta viðveru. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú nauðsynlegt að fá aftur varnarlið hingað til lands með fasta viðveru?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 57,5%

Já 36,4%

Hlutlaus 6,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila