Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki nauðsynlegt að tungumálið sé kynhlutlaust. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan er laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú nauðsynlegt að tungumálið sé kynhlutlaust?
Niðurstaðan var eftirfarandi
Nei 91,5%
Já 6,5%
Hlutlaus 2%