Könnun: Telja Joe Biden Bandaríkjaforseta hafa tekið þátt í meintum afbrotum Hunter Biden

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja Joe Biden Bandaríkjaforseta hafa tekið þátt í meintum afbrotum Hunter Biden sonar hans. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Joe Biden Bandaríkjaforseti hafi tekið þátt í meintum afbrotum Hunter Biden sonar síns?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 75,9%

Nei: 15,4%

Hlutlaus: 8,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila