Könnun: Telja lífskjör ekki batna þegar Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra

Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að lífskjör muni ekki batna þegar Bjarni Benediktsson verði foræstisráðherra. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Telur þú að lífskjör landsmanna muni batna þegar Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 70,9%

Já: 20,2%

Kannski: 8,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila