Könnun: Telja lýðræðið á Íslandi í hættu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja lýðræðið á Íslandi í hættu. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að lýðræðið á Íslandi sé í hættu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 87,1%

Nei: 11,2%

Hlutlausir: 1,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila