Könnun: Telja sig geta greint mjög vel eða frekar vel á milli falsfrétta og raunverulegra frétta

Rúmur helmingur þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja sig geta greint mjög vel eða frekar vel á milli falsfrétta og raunverulegra frétta. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hversu vel eða illa telur þú þig geta greint á milli falsfrétta og raunverulegra frétta?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Frekar vel 30,6%

Mjög vel 28,7%

Í meðallagi 20,5%

Frekar illa 12,6%

Mjög illa 7,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila