
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að það vanti pólitískan leiðtoga í Evrópu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það vanti pólitískan leiðtoga í Evrópu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 72,3%
Nei: 18,6%
Hlutlausir: 9%
