Könnun: Telja verkalýðshreyfinguna ekki nógu öfluga

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja verkalýðshreyfinguna á Íslandi ekki nógu öfluga. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Er verkalýðshreyfingin á Íslandi nógu öflug?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 72,8%

Já: 22,1%

Hlutlaus: 5,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila