Könnun: Telja yfirvöld ekki bregðast nægilega hratt við að tryggja fæðuöryggi í landinu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja yfirvöld ekki bregðast nægilega hratt við til þess að tryggja fæðuöryggi í landinu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eru yfirvöld að bregðast nægilega hratt við til að tryggja fæðuöryggi hér á landi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 87,2%

Já 7,2%

Hlutlaus 5,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila