Könnun: Treysta alls ekki tölum landlæknis um Covid tengd andlát

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu treysta alls ekki tölum landlæknis um að andlát vegna covid hafi verið tvisvar sinnum fleiri á síðasta ári en áður hafi verið skráð. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Treystir þú nýjum tölum landlæknis um að andlát vegna covid hafi verið tvisvar sinnum fleiri á síðasta ári en áður hafi verið skráð?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei, alls ekki 60,8%

Já, algjörlega 20,2%

Nei, en frekar óviss 10,8%

Hlutlaus 4,4%

Já, en frekar óviss 3,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila