Könnun: Vilja að Brynjar Níelsson verði fenginn til að lýsa Euróvisíonkeppninni frá Malmö

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Brynjar Níelsson verði fenginn til þess að lýsa Euróvisíonkeppninni frá Malmö í Svíþjóð sem fram fer í maí. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að Brynjar Níelsson verði fenginn til að lýsa sjónvarpsútsendingunni frá Euróvisíonkeppninni í Malmö í maí?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 69,2%

Nei: 21,8%

Hlutlaus: 9%

Greidd voru 542 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila