Könnun: Vilja að Evrópuráðið kanni aðstæður hælisleitenda í Grikklandi

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að Evrópuráðið kanni aðstæður hælisleitenda í Grikklandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að Evrópuráðið kanni aðstæður hælisleitenda í Grikklandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 56,9%

Nei 31,9%

Hlutlaus 11,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila