
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að húsnæðiskostnaður verði tekinn út úr vísitölu neysluverðs líkt og hjá öðrum Evrópulöndum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðast sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að húsnæðiskostnaður á Íslandi sé tekinn úr neysluvísitölunni líkt og hjá öðrum Evrópulöndum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 93,4%
Nei 5,2%
Hlutlaus 1,4%