Könnun: Vilja að vantraust gegn Svandísi verði samþykkt á Alþingi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að vantrauststillaga gegn Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra verði samþykkt á Alþingi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunnu á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að vantrauststillaga gegn Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra verði samþykkt á Alþingi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 91,1%

Nei: 6,8%

Hlutlausir: 2,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila