Könnun: Vilja aðra kosti en Guðlaug Þór eða Bjarna í formannsætið

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja annan einstakling í stað Bjarna Benediktssonar eða Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í formannsembætti flokksins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvorn myndir þú vilja sem formann Sjálfstæðisflokksins?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Annan 51,5%

Guðlaug Þór Þórðarson 28,2%

Bjarna Benediktsson 20,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila