
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að kosningaaldur verði lækkaður niður í 16 ár. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að kosningaaldur verði lækkaður niður í 16 ár?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 95,6%
Já 3,7%
Hlutlaus 0,7%