Könnun: Vilja ekki að ríkisstjórnarsamstarfið haldi áfram

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að ríkisstjórnarsamstarfið haldi áfram. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að ríkisstjórnarsamstarfið haldi áfram?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 86,6%

Já: 10,4%

Hlutlaus: 3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila